blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

11.14.2005

5 sept er síðasta innlegg! Hvurslags er þetta eiginleg? Hvarf bullið með þvi að verða 31? er einhver hætta á þvi að kona sé að þroskast uppúr þvi? % líkur á þvi? eh! ? !

Vildi óska að eg gæti deilt með ykkur hvað eg er buin að vera að gera síðan þá... en staðreind málsins er sú að eg man ekki neitt stundinni lengur... vegna vatnssöfnunar við heila.. ástæðan er læknisfræðilega sönnuð(heimild:stebba) Því skulum við bara vona að þessi tími hafi verið ljúfur og góður. Byrjum bara á nýjum kafla.. upphaf er 14 nov

Dýrinu datt þá snilldarhugmynd í hug að föndra fyrir komandi hátíð. Ekki er hægt að neita blessaða barninu um þá gleði og tók ég þvi á það ráð að útvega mér hvernig-á-að-gera-svona-hluti-blöð. Þetta verður sennilega eitthvert stórslys þar sem móðirinn er ekki mjög hæfileikarík í þessum geira. Að vísu má þess geta að ég fékk verðlaun þegar eg lauk grunnskóla fyrir afbragðs kunnáttu og hæfileika í handavinnu. Auka atriði er annars það að amma gerði alla mína handavinnu þannig þetta er að koma svoldið níðrá mér núna. Væri ekki svo vitlaust að setja inn mynd af furðuverkinu þegar þar að kemur!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home